SKÁLDSAGA Á ensku

The Jewel of Seven Stars

Sagan The Jewel of Seven Stars er eftir enska rithöfundinn Bram Stoker, þann sem samdi söguna Drakúla. Þó svo að sagan sé kannski ekki eins góð og Drakúla er þetta athyglisverð saga sem vert er að kynna sér. Hér rýnir Stoker öðrum þræði í samtímann og þar má finna beitta gagnrýni á nýlendustefnu Evrópuríkja á þessum tíma auk þess sem hann varpar fram spurningum um stöðu kvenna.

Sagan sem sögð er í fyrstu persónu segir frá því er ungur maður dregst inn í hrollvekjandi atburðarás þar sem fornleifafræðingur reynir að vekja hina fornu drottningu Egypta, Teru, til lífsins. Stoker var vel að sér í egypskum fræðum sem sjá má í bókinni en þar útlistar hann marga hluti í smáatriðum þess sem veit hvað hann er að tala um. Mörgum hefur yfirsést stílsnilld Stokers en á undanförnum hafa bókmenntamenn farið að gefa meiri gaum að því og vilja nú margir meina að margar af sögum hans megi alveg flokka sem fagurbókmenntir. Lesendur þurfi bara að líta aðeins lengra en í söguþráðinn.

Sagan kom fyrst út árið 1903 og svo árið 1912 í endurskrifaðri útgáfu sem hér birtist.


HÖFUNDUR:
Bram Stoker
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 268

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :